Skip to product information
1 of 5

Havarí

Mósaík-hekl í Havarí með Tinnu Hekl í október

Mósaík-hekl í Havarí með Tinnu Hekl í október

Regular price 11,900 ISK
Regular price Sale price 11,900 ISK
Tilboð Uppselt
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast inn í verðið þegar gengið er frá pöntun.
Quantity

Tinna Hekl kennir mósaíkmunstur í Havarí

Tinna hélt nokkur námskeið í Havarí í vor sem slógu í gegn og hún er því mætt aftur með nálarnar! Mósaíkmunstur eru ótrúlega skemmtileg og einföld hekl munstur sem hægt er að nota í allskonar verkefni. Á námskeiðinu kennir Tinna Hekl grunninn og tæknina í mósaíkmunstur hekli og þið gerið prufu með Havana uppskriftinni frá Tinnu. Þá sýnir hún ykkur líka hvernig tvöfaldur kantur virkar, sem notaður er til að fela endana. Þeir sem eru snöggir geta byrjað á kantinum líka. 

Námskeiðin eru ætlað þeim sem kunna aðeins að hekla og henta því ekki algjörum byrjendum, þá er nóg að kunna bara grunninn: loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla. 

Tinna Þórudóttir Þorvalda, betur þekkt sem Tinna Hekl. Hún hefur heklað og stundað hannyrðir síðan hún var barn, gefið út þrjár heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Tinna er þaulreynd í heklkennslu, hefur haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt hundruðum nemenda handtökin, bæði hér heima og erlendis. 

Hvað þarf að taka með?

- garn í prufu, minnst þrjá liti (best að hafa mikinn kontrast á litunum) og heklunál sem hæfir garninu. Það er hægt að nota hvaða garn sem er, bara einhverja afganga, en við mælum með að það sé ekki of fíngert. Þá er einnig gott að hafa í huga að vera ekki með dökka liti. 

- þið fáið uppskriftina senda fyrir námskeiðið. Best að er koma með hana útprentaða. Ef þið hafið ekki tök á því, er hægt að kaupa útprentið á staðnum fyrir 500 kr.

Upplýsingar um námskeið:

Hvenær: miðvikudaginn 14. október, 17:00 - 19:00 
Hvar: Havarí, Faxafeni 12
Verð: 11.900
Innifalið: uppskrift að uppskrift að Havana teppinu á rafrænu formi. Plús önnur uppskrift frá Tinnu að eigin vali í lok námskeiðis. Athugið að uppskriftirnar eru á ensku.
Lágmarksfjöldi: 5
Hámarksfjöldi: 12

Greiðsla staðfestir þátttöku en athugið að endurgreiðsla er ekki í boði ef kemur til forfalla af hálfu nemenda, en ykkur er þá velkomið að áframselja plássið.

Hér má skoða og kaupa uppskriftir eftir Tinnu: https://www.ravelry.com/designers/tinna-thorudottir

Sjáumst í heklinu!

 

View full details