Gallerí Havarí

Enn ein U-beygjan: opnunarsýning 

Fimm listamenn sýna nú hjá okkur í nýja rýminu í Faxafeni 12. Sýningin stendur til 15. ágúst. Sjón er sögu ríkari. Opið alla virka daga frá klukkan 11:00 - 17:00 og á laugardögum 12:00 - 16:00. 

Heimasíða: Hugleikur Dagsson


Sigrún Hlín Sigurðardóttir (f. 1988) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur fyrst og fremst með textíl, texta og teikningu og fæst í verkum sínum við tengsl mannkyns við efnisheiminn í gegnum frásagnir, myndir og tákn. Sigrún lauk meistaragráðu í myndlist frá Háskólanum í Bergen árið 2021 og hefur sýnt verk sín á Íslandi og í Noregi. Listrænn ferill hennar hefur að miklu leyti byggst á útúrsnúningum, tilviljunum og hæfilegum mótþróa gagnvart því að ganga frá lausum endum. Áramótaheitið hennar var að hætta að tala sjálfa sig niður en þið sjáið hvernig það gengur.

Heimasíða: Sigrún Hlín Sigurðardóttir

Karen Briem er búningahönnuður og listamaður sem starfar á mörkum sviðslista, myndlistar og innsetninga. Verk hennar einkennast af sterkri áherslu á textíl sem frásagnartæki, gagnvirka nálgun og uppnýtingu efna. Í verkum Karenar er uppnýting ekki aðeins aðferð heldur afstaða; leið til að endurhugsa gildi, notkun og samhengi hluta.


"Með teikningum mínum langar mig að fanga nútíma raunveruleika okkar og staðsetja hann fyrir framan tímalausan mikilfengleika náttúrunnar. Áhrifin koma víða, landslögin eru stundum byggð á íslenskum staðsetningum, á öðrum tímum eru þau heima spunninn en byggð á minningum mínum eða hversdagslegum brotum í mínu nánasta umhverfi. Mér þykir list smávegis eins og vörður sem finna má á fjalli og líkar vel við þá tilhugsun að einhvers- staðar og tímann í framtíðinni gæti einhver mannveran verið að velta fyrir sér lífið og menninguna á okkar tíma og stað og rekist þá á verk eftir mig. Að því leyti sé ég þau sem nokkurskonar skrásetning.

Stundum birtast vörumerki í verkum mínum en þau eru ávallt komin frá sjálfum mér en ekki alvöru fyrirtækjum eða stofnunum. Vörumerkin eru sem sagt merkingarlaus og tákna í raun merkingarleysi, eða kannski tákna þau tákn. Tákn um tákn, eða tákn um samskipti. Samskipti er eftir allt saman meðal annars það sem bindir mannkynið saman og þá er eins gott að vera skýr." Heimasíða: Sigurður Ámundason


Heimasíða: Lóa Hjálmtýsdóttir