Úthlutanir
Úthutanir Fjármögnun sjóðsins Stjórn minningarsjóðsins
GARG, bókabúð, sem stofnuð er og rekin af Helgu Dögg Ólafsdóttur bókahönnuði, hlaut einnar milljón króna styrk fyrir árið 2026, til að vinna að verkefninu Garg útgáfa. Verkefnið styður útgáfu á bæklingum, plakötum og hvers kyns efni fyrir miðlun. Verkefnið mun styðja við nýsköpun í list og sjálfstæða menningarframleiðslu. Nánar um verkefnið.

Árið 2025 hlaut Egill Logi Jónasson, sem gengur undir listamannsnafninu Drengurinn Fengurinn, einnar milljón króna styrk til að vinna að verkefninu Dreamboy Syndicate.
Dreamboy Syndicate heldur utan um alla listssköpun Egils Loga sem býr og starfar á Akureyri. Egill er mjög afkastamikill listamaður sem leggur bæði stund á myndlist og tónlist og hefur gefið út fjölmargar breiðskífur. Innan verkefnisins er einnig prentverk, tónlistarútgáfa, tónleikahald, hljóðver, norrænt samstarf og fleira.

Ægir Sindri Bjarnason, tónlistarmaður, hlaut fyrsta styrkinn úr Minningarsjóði Svavars Péturs Eysteinssonar; 26. apríl 2024 og fékk hann 1.000.000.- kr. í styrk.

Ægir Sindri sótti um styrk fyrir viðburðahald í tónleikarýminu R6013 við Ingólfsstræti sem hann hefur rekið í nokkur ár og haldið fjölmarga tónleika. Í rökstuðningi stjórnar Minningarsjóðs SPE segir: Verkefnið er frumkvöðlastarf sem er keyrt áfram af miklum drifkrafti, hugsjón og skýrri sýn. Það styður við fjölda listamanna og við grasrót tónlistarstarfs. Verkefnið er jafnframt vel afmarkað og með skýr markmið. Stjórn Minningarsjóðs Svavars Péturs Eysteinssonar styður með stolti við verkefnið þar sem það er í anda Svavars Péturs að stefna saman tónlistarfólki með tónleikahaldi sem er opið öllum tónlistarstefnum sem og kynslóðum.