Pop-in / Pop-up
Vilt þú selja þína hönnun / varning í Havarí?
Pop-in: Hægt er að sækja um að leigja tímabundið pláss í Havarí. Við miðum við 6-8 vikur.
Pop-up: Hægt er að sækja um að vera með pop-up. Miðast við einn dag.
Umboðssala: Hægt er að sækja um að setja vörur í umboðssölu.
Sendu okkur póst á havari@havari.is
Í GANGI NÚNA:
16. maí - 16. júlí: Maríuklæði
María Pétursdóttir hefur nú flutt merkið sitt Maríuklæði inn í Havarí og verður hjá okkur til 15. júlí. María hefur hannað föt undir merkinu Maríuklæði undanfarin 12 ár og hafa fötin notið mikilla vinsælda. María notar ýmsar aðferðir til að lita fatnað og gera mynstur með litum og efnum. Hún endurnýtir fatnað eins og hægt er, litar vintage föt og saumar nýjar flíkur úr gömlum.
Velkomin til okkar í Faxafen 12, opið alla virka daga 11:00-17:00 og á laugardögum 12:00-16:00.


