Fjármögnun sjóðsins
Úthutanir Fjármögnun sjóðsins Stjórn minningarsjóðsins
Þau sem vilja styðja við sjóðinn er bent á að millifæra á reikning: 0133-26-9936 kt. 650423-2830.
Stjórn sjóðsins hefur unnið ötullega að fjármögnun sjóðsins frá því hann var sopnunar með fjölmörgum verkefnum. Og erum við endalaust þakklát öllum þeim sem hafa lagt fram vinnu í þágu sjóðsins, lagt til fé og / eða tekið þátt í öllum þessum verkefnum.
Í samstarfi við 66°Norður var gerð flíspeysuútgáfa af Haustpeysu Prinsins. Peysan var hönnuð af Svavari Pétri í samstarfi við 66°Norður, og var ágóði af sölu tileinkaður sjóðnum. Árið 2025 var svo gefin út prjónauppskrift af Haustpeysunni og rennur 20% af ágóða prjónapakkans í Minningarsjóðinn. Sérstakar þakkir fyrir vinnu við það verkefni fá Katrín Björk Sigríðardóttir og Sæunn Þórðardóttir.

Haustpeysa Prins Póló í samstarfi við 66°norður
Stjórn sjóðsins stóð fyrir Hátíð hirðarinnar: Afmælistónleikum Prins Póló, þar sem fjölmargir tónlistarmenn komu fram og gáfu vinnu sína fyrir málstaðinn.

Þá var myndaður Hlaupahópur Hirðarinnar þar sem nokkrir galvaskir hlauparar hlupu og söfnuðu áheitum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Hér má sjá aðeins nokkra:

