Námskeið

 

Námskeið með Tinnu Hekl í nóvember

11. nóvember, 17:00-19:00 - Buddugerð með mósaíkmun

Á námskeiðinu kennir Tinna Hekl grunntæknina í mósaíkmunstur hekli. Farið verður yfir hvernig nota má þessa tækni við að gera fallegar buddur. Á námskeiðinu byrjið þið á ykkar eigin buddu, ættuð að komast vel á veg með hana svo þið getið auðveldlega klárað hana heima. Þá má einnig nota sömu uppskrift og tækni til að hekla mósaík púða eða stærri töskur. 

Tinna hefur haldið nokkur námskeið í Havarí við miklar vinsældir - svo við endurtökum leikinn!

18. nóvember, 17:00 - 19:00 - Mósaíkhekl

Mósaíkmunstur eru ótrúlega skemmtileg og einföld hekl munstur sem hægt er að nota í allskonar verkefni. Á námskeiðinu kennir Tinna Hekl grunninn og tæknina í mósaíkmunstur hekli og þið gerið prufu með Havana uppskriftinni frá Tinnu.

Skráning og nánari upplýsingar

Vilt þú halda námskeið í Havarí? Við bjóðum upp á frábæra aðstöðu fyrir hverskyns námskeið. Við höldum utan um skráningar, innheimtu og aðstoð við kynningu.

Fyrir nánari upplýsingar sendu okkur póst á havari@havari.is