Skip to product information
1 of 1

Havarí

Saumaklúbbur Havarí og Tinnu Hekl – 4. nóvember

Saumaklúbbur Havarí og Tinnu Hekl – 4. nóvember

Regular price 0 ISK
Regular price Sale price 0 ISK
Tilboð Uppselt
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast inn í verðið þegar gengið er frá pöntun.
Quantity

Skráning í fyrsta Saumaklúbb Havarí og Tinnu Hekl

Við stofnum Saumaklúbb Havarí í samstarfi við Tinnu Hekl! Við hittumst fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 17–20 í Havarí til að prjóna og hekla saman. Öll geta komið með það sem þau eru að vinna í, og í byrjun hvers kvölds verður kynning eða eitthvað óvænt.

Fyrsti saumaklúbburinn verður miðvikudaginn 4. nóvember. 

Tinna verður með kynningu á nýju verkefni sem hún kallar Sólstöðu-samhekl. Auk þess sýnir hún allskonar skemmtilegt mósaíkhekl. 

Katrín Björk Sigríðardóttir, prjónahönnuður Haustpeysu Prins Póló, verður líka með okkur. 

Í tilefni opnunarinnar verða búbblur og síder í boði.

Frítt inn og öll velkomin, jafnt byrjendur sem lengra komin. Endilega takið hannyrðirnar með (eða ekki!) og höfum gaman saman.

Frítt inn og gott að fá skráningar svo við getum tryggt sæti, en auðvitað öll velkomin að líta inn!

 

View full details