Havarí
Prins Póló - live á Bræðslunni 2025
Prins Póló - live á Bræðslunni 2025
Couldn't load pickup availability
Einn af uppáhaldsstöðum Prins Póló var Borgarfjörður Eystri og tónlistarhátíðin Bræðslan átti sérstakan stað í hjarta Svavars Péturs. Það var því mjög gaman að fá boð um að spila á hátíðinni árið 2015 og hóað var í einvala lið tónlistarmanna til að spila með. Spilagleðin leyni sér ekki á upptökunni! Æfingar fóru fram dagana fyrir Bræðsluna á Karlsstöðum í Berufirði, sælla minninga.
Tónleikarnir voru teknir upp og nú hafa dáðadrengirnir á bak við Bræðsluna gefið út Prins Póló settið á vínyl, í takmörkuðum og númeruðum eintökum, alls 200 stk. Havarí er með 100 stk. í sölu og svo verður að sjálfsögðu hægt að næla sér í eintak á Bræðslunni ´26, 26. júlí.
Hlið A
Bragðarefir
Hamstra sjarma
Tipp Topp
Hlið B
Finn á mér
Niðrá strönd
París Norðursins
Hljómsveit:
Svavar Pétur Eysteinsson
Berglind Häsler
Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Kristján Freyr Halldórsson
Sigríður Thorlacius
Guðmundur Óskar Guðmundsson
Jónas Sigurðsson
Þetta er fjórða live útgáfan af tónleikum Bræðslunnar, sem aðstandendur hátíðarinnar gefa út.
Upptaka og hljóðblöndun:
Haffi Tempó
Umslag:
Hafþór Snjólfur
Deila
