Skip to product information
1 of 5

Havarí

Litla Haustpeysan - prjónapakki

Litla Haustpeysan - prjónapakki

Regular price 11.900 ISK
Regular price Sale price 11.900 ISK
Tilboð Uppselt
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast inn í verðið þegar gengið er frá pöntun.
Litir
Aldur
Quantity

Uppskrift af Haustpeysu Prins Póló er nú fáanleg í prjónapakka. Þú velur tvo liti af fimm af léttlopa frá Ístex og í þeirri stærð sem þú vilt (sjá litasamsetningar á mynd til hliðar). Auk þess fylgir uppskrift af kórónu og af peysu og kórónu fyrir dúkkur! 

Uppskrift og garn koma í sniðugum umbúðum sem hægt er að breyta í kórónu sem þú getur annað hvort sett á höfuðið eða nýtt sem geymslubox fyrir garn. Lítið veggspjald/póstkort fylgir með sem fer vel á vegg.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Ístex. Katrín Björk Sigríðardóttir, prjónahönnuður, gerði uppskriftina, Sæunni Þórðardóttur er listrænn stjórnandi og yfirspinnari og Berglind Häsler verkefnastjóri fyrir hönd Havarí. 

Verkefnið er unnið í minningu tónlistarmannsins Prins Póló sem elskaði íslensku ullina og fór ekki til Tene án þess að vera í ullarsokkunum! 20% af ágóðanum rennur í Minningarsjóð Svavars Péturs Eysteinssonar, Prins Póló. 

Ljósmyndir: Sunna Ben

View full details