Kæru vinir og velunnarar Havarí
Við byrjum nýtt ár á því að fá afhent nýtt og stærra húsnæði fyrir Havarí í Skeifunni. Við flytjum þó ekki strax, það þarf að taka aðeins til hendinni.
Havarí hefur frá stofnun tekið á sig ýmsar myndir; verið einhvers konar hattur fyrir eigendur sína, mig, Berglindi Häsler, og Svavar Pétur Eysteinsson heitinn. Havarí hefur verið plötubúð, viðburðarými, gallerí, matvælaframleiðsla, tónleikastaður, gistihús, plötuútgáfa og fleira og fleira. Stækkað og minnkað eftir aðstæðum, verið í sveit og í borg. Eftir að Svavar Pétur lést árið 2022 hef ég átt í fullu fangi með að ná utan um þá miklu arfleifð sem hann skildi eftir sig — og þeirri vinnu er alls ekki lokið. Í samráði við börnin og nánustu ættingja ákvað ég að halda áfram að reka Havarí, halda minningu Svavars Péturs á lofti og leyfa fólki að njóta verka hans áfram.
Það höfum við gert — og gerum áfram.
Og svo er það þessi botnlausa þörf fyrir að breyta til sem alltaf hefur einkennt okkur í Havarí: skapa eitthvað nýtt, vinna með skapandi fólki, aldrei staðna. Nú er enn á ný kominn tími fyrir breytingar.
Líkt og þegar Havarí var opnað fyrst í Austurstræti árið 2009 er rýmið að hluta auður strigi.
Eftir flutning verður m.a. hægt að:
* að leigja bil tímabundið fyrir vandað góss sem passar inn í Havarí
* koma með notaðan varning, húsgögn og hluti í tímabundna umboðssölu
* halda litla tónleika og setja upp sýningar
* leigja rýmið utan opnunartíma fyrir t.d. námskeið
Markmiðið er að búa til vettvang fyrir allskonar flott, síbreytilegt rými sem verður gaman að heimsækja og sækja innblástur í.
Þetta skýrist allt saman betur á næstu vikum og mánuðum — en verður auðvitað aldrei alveg skýrt. Það væri ekki í anda Havarí.
Þangað til er hægt að senda mér fyrirspurn á havari@havari.is
En fyrst er að bretta upp ermar og henda sér í vinnugallann!
Takk fyrir stuðning <3
Berglind Häsler
////// English
Dear friends and supporters of Havarí!
We’re starting the new year with the keys to a new and bigger space for Havarí. We’re not moving in just yet — there’s a bit of work to do first.
Since the beginning, Havarí has taken many forms; a kind of hat for its owners, me, Berglind Häsler, and the late Svavar Pétur Eysteinsson. Over the years it has been a record store, an event space, art gallery, food production, a concert venue, a guesthouse, a label, and more. After Svavar Pétur passed away in 2022, I’ve been working to care for and carry forward the legacy he left behind — and that work is far from finished. Together with our children and close family and friends, I decided to keep Havarí going, to honour his memory and keep his work alive for others to enjoy.
And we will continue to do so.
Havarí has also always been driven by a restless need to change, to create something new, to collaborate with creative people, and never stand still. So — now it’s time for another shift.
Just like when Havarí first opened in Austurstræti in Reykjavík in 2009, the new space is partly a blank canvas.
After the move, it will be possible to:
-
rent a spot temporarily for carefully chosen goods that fit Havarí
-
bring used items, furniture, and objects for temporary consignment
-
host small concerts and exhibitions
-
rent the space outside opening hours for workshops or courses
More details will follow in the coming weeks and months — though it will never be completely clear. That wouldn’t be in the spirit of Havarí.
For inquiries, email me at havari@havari.is.
Now: sleeves up and into the workwear!
Thank you for the support <3
Berglind Häsler