Enn ein U-beygjan: Opnun Havarí 2. maí

Enn ein U-beygjan: Opnun Havarí 2. maí

Kæru vinir og velunnarar Havarí. Við tökum enn eina U-beygjuna og bjóðum ykkur að fagna með okkur 2. maí Kl. 14:00-16:00 í Faxafeni 12. 

Við stækkum nú úr 15 fm í 200 fm. Við viljum skapa rými fyrir listamenn, hönnuði, handverksfólk, góss fólks úr geymslum, námskeið, viðburði... rými þar sem allt og ekkert getur gerst. Áfram og að eilífu höldum við utan um og varðveitum arfleið Svavars Péturs Eysteinssonar, Prins Póló, sem var einn af stofnendum Havarí. 

Dagskrá opnunarhátíðar:

14:00 - Opnun, samsýning fimm frábærra listamanna:

Hugleikur Dagsson
Sigrún Hlín Sigurðardóttir
Karen Briem
Sigurður Ámundason
Lóa Hjálmtýsdóttir

Hugleikur og Lóa verða einnig með varning í sölu í Havarí

14:15 - Opnunarhátíð formlega sett. Stutt ræða.
14:30 - DJ FM Dublin


15:30 - Tilbury

 

Back to blog