Tvöföld opnun í Havarí
Dr. Gunni og Steinunn Eldflaug opna hvor sína myndlistarsýninguna í Havarí, laugardaginn 31. október. Af því tilefni kemur hljómsveitin S.H. Draumur saman og leikur á opnuninni. Það verður í fyrsta skipti síðan 2010 sem sveitin kemur fram opinberlega!
Draumar í lit
Á sýningunni Draumar í lit sýnir Dr. Gunni 14 málverk sem byggja á textunum á plötunum Goð og Drap mann með skóflu með S.H. Draumi. Þetta er önnur einkasýning Dr. Gunna. Árið 2016 hélt hann sýninguna Atvik á Mokka kaffi. S.H. Draumur var starfandi á árunum 1982–1988 og er ein af lykilsveitum íslensku nýbylgjunnar.
Tvívíð tónlist
Steinunn Eldflaug útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2011. Síðan þá hefur hún unnið jöfnum höndum að myndlist, forritun, gjörningum og tónlist undir listamannsnafninu dj. flugvél og geimskip. Í fyrra hélt hún einkasýningu í Smekkleysu þar sem hún sýndi vatnslitamyndir. Á sýningunni Tvívíð tónlist í Havarí gefur einnig að líta stærri akrílverk, innblásin af biblíusögum, tarotspilum og draumum.
Báðar sýningarnar eru sölusýningar og þær standa til 30. nóvember.