Vinkonurnar Elísa og Katrín hafa tekið yfir horn í Havarí fyrir handvalin vintage-fatnað, skart og skó sem þær hafa að mestu sankað að sér í Mílanó þar sem þær búa og stunda nám.
Við ætlum að skála fyrir þessari dýrð, föstudaginn 18. september kl. 18:00 í Faxafeni 12 — komdu við, fáðu þér drykk og skoðaðu fyrstu sendinguna með eigin augum.