Fyrsti Saumaklúbbur Havarís og Tinnu Hekl!
Havarí stofnar Saumaklúbb í samstarfi við Tinnu Hekl! Við hittumst fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 17–20 í Havarí til að prjóna, hekla, sauma saman. Öll geta komið með það sem þau eru að vinna í, og í byrjun hvers kvölds verður alltaf kynning eða eitthvað óvænt.
Fyrsti saumaklúbburinn verður miðvikudaginn 4. nóvember. Þá ætlar Tinna að kynna nýja Sólstöðu-samheklið sitt og sýna okkur alls konar skemmtilegt mósaíkhekl. Í tilefni opnunarinnar verða búbblur og síder í boði.
Frítt inn, en sætin eru takmörkuð og því biðjum við ykkur að skrá ykkur hér: havari.is/collections/saumaklubbur-havari eða með því að senda póst á havari@havari.is.
Það er eitt pláss á mann. Ef þið skráið ykkur en komist svo ekki, endilega látið vita svo aðrir komist að
Það er eitt pláss á mann. Ef þið skráið ykkur en komist svo ekki, endilega látið vita svo aðrir komist að
Endilega takið hannyrðirnar með (eða ekki!) og gerum eitthvað skapandi saman í Feninu.