Havarí
Tinna Hekl kennir buddugerð með mósaíkmunstri
Tinna Hekl kennir buddugerð með mósaíkmunstri
Couldn't load pickup availability
Langar þig til að læra að hekla buddur með mósaíkmunstri?
Nú er tækifærið!
Á námskeiðinu kennir Tinna Hekl grunntæknina í mósaíkmunstur hekli. Farið verður yfir hvernig nota má þessa tækni við að gera fallegar buddur. Á námskeiðinu byrjið þið á ykkar eigin buddu, ættuð að komast vel á veg með hana svo þið getið auðveldlega klárað hana heima. Þá má einnig nota sömu uppskrift og tækni til að hekla mósaík púða eða stærri töskur.
Athugið að námskeiðið er ætlað þeim sem kunna aðeins að hekla og henta því ekki algjörum byrjendum. Nóg er að kunna bara grunninn: loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla.
Kennari er Tinna Þórudóttir Þorvaldar, betur þekkt sem Tinna Hekl. Hún hefur heklað og stundað hannyrðir síðan hún var barn, gefið út þrjár heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Tinna er þaulreynd í heklkennslu, hefur haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt hundruðum nemenda handtökin, bæði hér heima og erlendis.
Upplýsingar um námskeið:
Hvenær: miðvikudaginn 13. maí, klukkan 17:00-19:00
Hvar: Havarí, Faxafeni 12
Verð: 9.900
Innifalið: uppskrift að mósaík buddunum á rafrænu formi. Plús önnur uppskrift frá Tinnu að eigin vali í lok námskeiðis.
Lágmarksfjöldi: 5
Hámarksfjöldi: 12
Hvað þarf að taka með?
- 6-10 cm langan rennilás, ekki stærri svo allir komist vel á veg með budduna sína á námskeiðinu.
- Saumnál með beittum oddi sem hentar garninu sem á að nota.
- Heklunálar nr 2,5 og 3
- Bómullargarn sem hæfir nál 3, a.m.k. tvo liti og best er að hafa mikinn contrast í litunum. Það er hægt að nota hvaða garn sem er, t.d. afganga. Það fer minna en ein 50 gr dokka í eina buddu í þessari stærð.
Hér má skoða og kaupa uppskriftir eftir Tinnu: https://www.ravelry.com/designers/tinna-thorudottir
Sjáumst í heklinu!
Deildu
