Collection: Sigrún Hlín Sigurðardóttir

Sigrún Hlín Sigurðardóttir er ein fimm listamanna sem taka þátt í opnunarsýningu Havarí, Enn ein U-beygjan. Sigrún Hlín er myndlistarkona og hefur unnið með bæði textíl og texta í verkum sínum, meðal annars í innsetningum, leikhúsi og útvarpi. Hún lauk MA-gráðu í myndlist frá háskólanum í Bergen vorið 2021, BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands og í íslensku frá Háskóla Íslands og lagði þar að auki stund á nám í textílhönnun við Myndlistaskólann í Reykjavík. 

Nánar um Sigrúnu Hlín: https://www.sigrunhlin.com/