Á fögrum haustdegi austur á Seyðisfirði röltir ungur maður út í sjoppu í leit að hressingu. Hann á sér draum um að verða tónlistarmaður en vantar listamannsnafn. Hvað er það sem allir Íslendingar elska skilyrðislaust? Hann kaupir sér Prins Póló og fer heim að semja lög.
Tíu árum síðar lítur Prinsinn til baka yfir ferilinn, flettir gömlum dagblöðum og skissubókum og reynir með aðstoð góðra vina að meta stöðuna. Útkoman er litrík og hjartastyrkjandi.
Falskar minningar kom út á vegum Forlagsins haustið 2019. Á sama tíma kom út samnefnd hljómplata sem er aðgengileg á Spotify. Að lesa bókina og hlusta á plötuna er prýðileg skemmtun.