1
/
of
4
Havarí
Mósaík-hekl í Havarí með Tinnu Hekl
Mósaík-hekl í Havarí með Tinnu Hekl
Regular price
9.900 ISK
Regular price
Sale price
9.900 ISK
Taxes included.
Shipping calculated at checkout.
Quantity
Couldn't load pickup availability
Langar þig til að læra að hekla mósaíkmunstur? Nú er tækifærið!
Mósaíkmunstur eru ótrúlega skemmtileg og einföld hekl munstur sem hægt er að nota í allskonar verkefni. Á námskeiðinu kennir Tinna Hekl grunninn og tæknina í mósaíkmunstur hekli og þið gerið prufu með Havana uppskriftinni frá Tinnu. Þá sýnir hún ykkur líka hvernig tvöfaldur kantur virkar, sem notaður er til að fela endana. Þeir sem eru snöggir geta byrjað á kantinum líka.
Námskeiðið er ætlað þeim sem kunna aðeins að hekla og henta því ekki algjörum byrjendum, þá er nóg að kunna bara grunninn: loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla.
Tinna Þórudóttir Þorvalda, betur þekkt sem Tinna Hekl. Hún hefur heklað og stundað hannyrðir síðan hún var barn, gefið út þrjár heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Tinna er þaulreynd í heklkennslu, hefur haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt hundruðum nemenda handtökin, bæði hér heima og erlendis.
Hvað þarf að taka með?
- garn í prufu, minnst þrjá liti (best að hafa mikinn kontrast á litunum) og heklunál sem hæfir garninu. Það er hægt að nota hvaða garn sem er, bara einhverja afganga, en við mælum með að það sé ekki of fíngert. Þá er einnig gott að hafa í huga að vera ekki með dökka liti.
Upplýsingar um námskeið:
Hvenær: miðvikudaginn 20. maí, 17:00 - 19:00
Hvar: Havarí, Faxafeni 12
Verð: 9.900
Innifalið: uppskrift að uppskrift að Havana teppinu á rafrænu formi. Plús önnur uppskrift frá Tinnu að eigin vali í lok námskeiðis.
Hvar: Havarí, Faxafeni 12
Verð: 9.900
Innifalið: uppskrift að uppskrift að Havana teppinu á rafrænu formi. Plús önnur uppskrift frá Tinnu að eigin vali í lok námskeiðis.
Lágmarksfjöldi: 5
Hámarksfjöldi: 12
Hámarksfjöldi: 12
Greiðsla staðfestir þátttöku en athugið að endurgreiðsla er ekki í boði ef kemur til forfalla af hálfu nemenda, en ykkur er þá velkomið að áframselja plássið.
Hér má skoða og kaupa uppskriftir eftir Tinnu: https://www.ravelry.com/designers/tinna-thorudottir
Sjáumst í heklinu!
Deildu
