Havarí
Jólaboð Hljómsveitarinnar Evu – 13. desember
Jólaboð Hljómsveitarinnar Evu – 13. desember
Couldn't load pickup availability
Jólaboð Hljómsveitarinnar Evu
Sunnudaginn 13. desember í Havarí
Tvennir tónleikar: kl. 17:00 og kl. 20:00
Veldu tímasetningu hér að ofan.
Það er myrkur svo serían sjáist.
Það er myrkur svo mómentið náist.
Myrkrið og við og endalaust af mandarínum.
"Í ár ætlum við að koma okkur fyrir á nýjum stað, í Havarí, og búa þar til svolítinn jólaheim í miðju skammdeginu".
Það verður jólalögur og jóla-leg. Ullarsokkar og einfaldleiki. Við einsetjum okkur að sleppa taki af öllu kúli og dýfa okkur í nostalgíu jólanna. Syngja lögin sem við kunnum utan að, þau sem ylja og þau sem vekja upp minningar um jól sem voru einu sinni.
Mandarínurnar munu að sjálfsögðu fljúga um salinn og jólaandinn fær að ráða för.
Verið hjartanlega velkomin í jólaboðið okkar. Við hlökkum til að eiga með ykkur smá stund í myrkrinu og ljósunum ❤️" - Sigga og Vala
Deildu
