Pop-in - Innflutningspartí Maríuklæða
María Pétursdóttir flytur merkið sitt Maríuklæði inn í Havarí laugardaginn 16. maí og verður hjá okkur næstu 8 vikurnar. María hefur hannað föt undir merkinu Maríuklæði undanfarin 12 ár og hafa fötin notið mikilla vinsælda. María notar ýmsar aðferðir til að lita fatnað og gera mynstur með litum og efnum. Hún endurnýtir fatnað eins og hægt er, litar vintage föt og saumar nýjar flíkur úr gömlum.
Innflutningspartí Maríuklæða, laugardaginn 16. maí, klukkan 14:00–16:00
Sigga Eyþórs (Systur, Pikknikk) mætir með gítarinn og tekur nokkur lög og boðið verður upp á heimagerðan sumardrykk.