Opnunarpartí Havarí Vintage - Myndir

Opnunarpartí Havarí Vintage - Myndir

Um helgina var haldið opnunarpartý Havarí Vintage, nýrrar vintage búðar inni í Havarí. Á bak við hana standa vinkonurnar Elísa Egilsdóttir Häsler, Katrín Sunneva Einarsdóttir og Rakel Rögnvaldsdóttir. Þær kynntust í námi í Mílanó, þar sem Elísa og Katrín handvelja nú flíkurnar. Rakel sér um sjónræna ásýnd búðarinnar. Viðbrögð við fyrstu sendingu hafa farið fram úr björtustu vonum, og næsta sending í fullum undirbúningi. Von bráðar verður Havarí Vintage líka fáanlegt í vefbúð Havarí. Við erum virkilega spennt fyrir þessu nýja samstarfi!

Katrín Sunneva Einarsdóttir, Elísa Egilsdóttir Häsler og Rakel Rögnvaldsdóttir

Rakel tekur við hamingjuóskum

Sæsa og Flóki

Hver flík er vandlega valin 

Svo margt fínt!

Elísa, Katrín og Nanna í góðum fíling

 

Systkinin Hrólfur og Elísa 

Back to blog