Opin bók - P og d: OPNUN 22.08

Opin bók - P og d: OPNUN 22.08

Opin bók — P og d
Sýning í Havarí 22. ágúst – 24. október 2025

Sýningin Opin bók - P og d með verkum Péturs Más Gunnarssonar og Davíðs Arnar Halldórssonar, verður opnuð í Havarí laugardaginn 22. ágúst. Opnunin hefst klukkan 14:00 og eru öll velkomin. 

P og d er óvissuferð Péturs Más Gunnarssonar og Davíðs Arnar Halldórssonar um þá undirheima og ormagöng sem einkenna sameiginlegt minni eftir áratuga langa samfylgd. Hvor um sig hefur um langt skeið unnið að myndlist með sínu nefi en kanna nú saman þá þætti sem liggja til grundvallar fagurfræðilegri sýn. 

Undanfarið hafa þeir átt endurfundi við gamalt æskuhangs og tekið höndum saman við gerð myndverka. Þar mæta maníukennd, lagskipt, litrík, óræð og fínpússuð smáatriði Davíðs hrárri og hlutbundnari myndgerð Péturs á óvægnum vígvelli samhljómsins. Eftir ævilangt ráf um tví- og þrívíðar lendur lita og forma gera þeir sér nú mat úr þeim víxlverkandi áhrifum sem list þeirra og vinskapur byggir á í þeirri trú að fjórhent spil á vefstól líðandi stundar skili nýjum lærdómi.

Back to blog