Námskeið með Tinnu Hekl í október

Námskeið með Tinnu Hekl í október

Þrjú námskeið með Tinnu Hekl eru komin í sölu hér í Havarí. Tinna hélt nokkur námskeið í Havarí í vor sem slóu alveg í gegn - svo við endurtökum leikinn!

Kennari er Tinna Þórudóttir Þorvaldar, betur þekkt sem Tinna Hekl. Hún hefur heklað og stundað hannyrðir síðan hún var barn, gefið út þrjár heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Tinna er þaulreynd í heklkennslu, hefur haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt hundruðum nemendum. Svo er hún líka bara svo skemmtileg. Skráning og nánari upplýsingar. 

Back to blog