Listamannaspjall með Pétri Má Gunnarssyni

Listamannaspjall með Pétri Má Gunnarssyni

Pétur Már Gunnarsson verður með listamannaspjall um sýninguna Opin bók P og d, í Havarí föstudaginn 9. október klukkan 18:00.
Sýningin var opnuð í Havarí í lok ágúst og stendur til 26. október. Hún hefur laðað margað að enda útkoman algjörlega einstök. Sýningin er unnin af æskuvinunum Pétri Má og Davíð Erni. Davíð Örn býr í Stuttgart og verður því fjarri góðu gamni.
“Gjörið svo vel, hér er einmitt þetta sem engin ein manneskja gat gert og alls enginn annar en akkúrat þeir.”
Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarkona, um sýninguna.
Hér eru nokkrar myndir af sýningunni og frá opnun hennar: 
Back to blog