Havarí var opnað með stæl í Faxafeni 12, laugardaginn 2. maí. Samtímis var hér opnuð samsýning fimm listamanna sem mun standa til 15. ágúst. Sjón er sögu ríkari! Nú er opið alla virka daga frá klukkan 11:00-17:00 og á laugardögum frá klukkan 12:00-16:00. Hér eru myndir sem Kári Thayer tók á opnunarhátíðinni.