Garg bókabúð hlýtur styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs

Garg bókabúð hlýtur styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs

Útdeilt úr Minningarsjóði Svavars Péturs Eysteinssonar í þriðja sinn.

GARG Bókabúð, sem rekin er af Helgu Dögg Ólafsdóttur bókahönnuði, hlýtur einnar milljón króna styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Eysteinssonar í ár, til að vinna að verkefninu Garg útgáfa. Verkefnið styður útgáfu á bæklingum, plakötum og hvers kyns efni fyrir miðlun. Verkefnið mun styðja við nýsköpun í list og sjálfstæða menningarframleiðslu.

Bókabúðin Garg er samfélagsrými sem leggur áherslu á bókmenntir á jaðrinum og að skapa pláss fyrir nærumhverfið með samtali og samveru. Einnig er Garg róttækur samastaður fyrir alls kyns uppákomur svo sem upplestra, leshringi, myndlistarsýningar og tónleika. Garg útgáfa mun gefa út efni á vegum rýmisins og í anda þess. 

 

Helga lýsir verkefninu Garg útgáfa þannig: Okkur langar að gefa út efni ­eftir samfélagið í kringum okkur. Efni sem á ekki ­erindi í stórar ­útgáfur eða prentsmiðjur heldur efni skrifað af ­samfélaginu fyrir samfélagið – dreifing þekkingar án ­sérfræðinga. Við viljum með þessu verkefni hvetja til sjálfsútgáfu. Útgáfan fylgir hverju viðfangsefni til enda og verður fylgt eftir með upplestri, samlestri, uppákomum og fleiru. Útgáfurnar eru allar framleiddar á ódýran og auðveldan hátt þar sem mikið er lagt upp úr að finna umhverfisvænan efnivið. Verkefnið mun styðja við nýsköpun í list og sjálfstæða menningarframleiðslu og í senn vera hvatning fyrir fólk til að finna sína eigin rödd innan veggja Garg.

Í rökstuðningi stjórnar Minningarsjóðs Svavars Péturs segir: Verkefnið er frumkvöðlastarf sem er keyrt áfram af miklum drifkrafti, hugsjón og skýrri sýn. Það styður við fjölda listamanna og gefur fólki tækifæri til að koma list sinni á framfæri. Sjóðurinn styður með stolti við verkefnið.

Minningarsjóður Svavars Péturs var stofnaður árið 2023 með það að leiðarljósi að halda minningu einstaks listamanns á lofti. Svavar Pétur lést úr krabbameini 29. september árið 2022. Svavar Pétur var best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló. Hann var fjölhæfur og framtakssamur tónlistarmaður, myndlistarmaður, hönnuður, matvælaframleiðandi, frumkvöðull og bóndi sem veitti fjölda fólks innblástur með verkum sínum og vinnu, hugmyndauðgi, kjarki og þori. 

Markmið sjóðsins er að styðja við listamenn og frumkvöðla sem vinna í sama anda og Svavar Pétur.

Úthlutun 2024 og 2025: Fyrsti styrkur sjóðsins fór til Ægis Sindra Bjarnasonar, fyrir viðburði í tónleikarýminu R6013 við Ingólfsstræti. Árið eftir hlaut Egill Logi Jóhannsson styrkinn fyrir verkefnið Dreamboy Syndicate, sem heldur utan um fjölþætta listsköpun hans á Akureyri.

Fjármögnun sjóðsins hefur meðal annars byggst á samstarfi við 66°Norður, Hátíð hirðarinnar: Afmælistónleikar Prins Póló, söfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon og nú síðast, prjónauppskrift af Haustpeysu Prins Póló í samstarfi við Havarí.

Aðstandendur Minningarsjóðsins eru afar þakklátir öllum þeim sem hafa lagt fram vinnu í þágu sjóðsins, lagt til fé og/eða tekið þátt í öllum þessum verkefnum. 

Þeim sem vilja leggja sjóðnum lið með samstarfi, vinnuframlagi eða einhverju allt öðru er bent á að hafa samband, minningarsjodursvavarspeturs@gmail.com.

Þau sem vilja styðja við sjóðinn með fjárframlagi er bent á að millifæra á reikning: 0133-26-9936 kt. 650423-2830.

Og að sjálfsögðu verður aftur hlaupið fyrir Minningarsjóðinn í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.

Stjórn sjóðsins skipa:

Berglind Häsler

Elsa Þórey Eysteinsdóttir

Benedikt Hermann Hermannsson

Björn Kristjánsson

Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir

 

Back to blog