ATH: AÐEINS ÖRFÁ EINTÖK EFTIR!
Þriðja kryddið, nýjasta breiðskífa Prins Póló, kom út vorið 2018 og hlaut fádæma góðar viðtökur. Verkið inniheldur meðal annars hugleiðingar eins og „Er of seint að fá sér kaffi núna?“ og „Líf ertu að grínast?“ Þessi 33 snúninga snarkandi vínylplata er nú fáanleg í takmörkuðu upplagi.
Í hlaðvarpinu Besta platan má hlýða á athyglisverða greiningu á verkinu: https://open.spotify.com/episode/01RVcvZn4CwUSeqVVIACDs?si=DrzFjhxXT82WV_9iB_tfiQ