{"product_id":"mosaik-buddu-namskeid-med-tinnu-thorudottur-thorvaldar","title":"Tinna Hekl kennir buddugerð með mósaíkmunstri","description":"\u003ch3\u003eLangar þig til að læra að hekla buddur með mósaíkmunstri? \u003cbr\u003e\n\u003c\/h3\u003e\n\u003ch3\u003eNú er tækifærið! \u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eÁ námskeiðinu kennir Tinna Hekl grunntæknina í mósaíkmunstur hekli. Farið verður yfir hvernig nota má þessa tækni við að gera fallegar buddur. Á námskeiðinu byrjið þið á ykkar eigin buddu, ættuð að komast vel á veg með hana svo þið getið auðveldlega klárað hana heima. Þá má einnig nota sömu uppskrift og tækni til að hekla mósaík púða eða stærri töskur. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAthugið að námskeiðið er ætlað þeim sem kunna aðeins að hekla og henta því ekki algjörum byrjendum. Nóg er að kunna bara grunninn: loftlykkjur, fastalykkjur og stuðla. \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKennari er Tinna Þórudóttir Þorvaldar, betur þekkt sem Tinna Hekl. Hún hefur heklað og stundað hannyrðir síðan hún var barn, gefið út þrjár heklbækur, þær Þóru, Maríu og Havana, og ritstýrt þeirri fjórðu, Heklfélaginu. Tinna er þaulreynd í heklkennslu, hefur haldið heklnámskeið sl. 15 ár og kennt hundruðum nemenda handtökin, bæði hér heima og erlendis. \u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eUpplýsingar um námskeið:\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHvenær:\u003c\/strong\u003e miðvikudaginn 13. maí, klukkan 17:00-19:00\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eHvar:\u003c\/strong\u003e Havarí, Faxafeni 12\u2028\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 9.900\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003e\u2028Innifalið:\u003c\/strong\u003e uppskrift að mósaík buddunum á rafrænu formi. Plús önnur uppskrift frá Tinnu að eigin vali í lok námskeiðis. \u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eLágmarksfjöldi:\u003c\/strong\u003e 5\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eHámarksfjöldi:\u003c\/strong\u003e 12\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eHvað þarf að taka með? \u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e - 6-10 cm langan rennilás, ekki stærri svo allir komist vel á veg með budduna sína á námskeiðinu.\u003cbr\u003e- Saumnál með beittum oddi sem hentar garninu sem á að nota.\u003cbr\u003e- Heklunálar nr 2,5 og 3\u003cbr\u003e- Bómullargarn sem hæfir nál 3, a.m.k. tvo liti og best er að hafa mikinn contrast í litunum. Það er hægt að nota hvaða garn sem er, t.d. afganga. Það fer minna en ein 50 gr dokka í eina buddu í þessari stærð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eHér má skoða og kaupa uppskriftir eftir Tinnu: https:\/\/www.ravelry.com\/designers\/tinna-thorudottir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSjáumst í heklinu!\u003c\/p\u003e","brand":"Havarí","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47708489875682,"sku":null,"price":9900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0003\/8885\/7913\/files\/havari-hekl-insta.jpg?v=1777405539","url":"https:\/\/havari.is\/en\/products\/mosaik-buddu-namskeid-med-tinnu-thorudottur-thorvaldar","provider":"Havarí","version":"1.0","type":"link"}