VIÐBURÐIR / EVENTS
 
 
Kæri vinur
(english below)

Menningarafurðastöðin Havarí hættir starfsemi í Austurstræti 6 laugardaginn 29. janúar. Það hefur mikið gengið á síðustu 17 mánuði. Hver man ekki eftir bleiku pönnukökunum, sýningu Ísaks Óla, öllum ræðunum hans Hugleiks og trilljón frábærum tónleikunum. Við höfum ekki tölu á viðburðunum en þeir eru örugglega að nálgast annað hundrað. Við kveðjum hinn dökka soll í miðbæ Reykjavíkur með trega enda fór vel um okkur. En túristarnir hafa tekið yfir, þarna mun rísa hótel!

Við endum þetta fyrsta bindi í sögu Havarí með kurt og pí og allsherjar kveðjuhátíð. Hátíðin stendur yfir frá 17. janúar til lokunar þann 29. janúar og þar ætla góðvinir og aðstandendur Havarí að skemmta sér og öðrum með tónlistaratriðum, myndlistaruppákomum, upplestrum, innsetningum og allskonar dótaríi. Við efnum auk þess til absalútsölu þar sem hljómplötur og aðrar menningarafurðir verða boðnar með meiriháttar afslætti.

Menningarhungraðir miðborgargestir þurfa þó ekki að örvænta, Havarí mun opna á nýjum stað í miðborginni með vorinu og leit stendur yfir að heppilegu húsnæði. Þangað til verður fólk að láta sér nægja hrútspunga og magál.


Dagskráin 17. - 29. janúar verður einhvernvegin svona:

- Mánudagur 17. janúar klukkan 11
Hinn óviðjafnanlegi Spar-Jan setur á sig lakkrísbindið og opnar menningarhátíðina og absalútsöluna.

- Þriðjudagur 18. janúar
Tilkynnt síðar

- Miðvikudagur 19. janúar klukkan 16
Sindri Eldon ásamt hljómsveit. Fyrri hluti.

- Fimmtudagur 20. janúar klukkan 16
Sindri Eldon ásamt hljómsveit. Seinni hluti.

- Föstudagur 21. janúar klukkan 16
Per: Segulsvið

- Laugardagur 22. janúar klukkan 16
Skakkakrepes og Hljómsveit Mr. Silla

- Mánudagur 24. janúar
Þórir Georg og hljómsveit, jómfrúartónleikar

- Þriðjudagur 25. janúar klukkan 16
AMFJ

- Miðvikudagur 26. janúar
Tilkynnt síðar

- Fimmtudagur 27. janúar klukkan 16
Amiina

- Föstudagur 28. janúar klukkan 16
Tilkynnt síðar

- Laugardagur 29. janúar klukkan 16
Lokatónleikar Havarí: Prinspóló og Fm Belfast.


Við hlökkum til að sjá sem flesta njóta með okkur síðustu tveggja viknanna í Austurstræti 6. Komið og kveðjið okkur, klárið kaffið okkar, tæmið hillurnar okkar og njótið menningarinnar.

Havarí



-------------------------- -----



Dear Friend of Havarí

Cultural center and record store Havarí will close shop in Austurstræti 6 Saturday 29th of January. Havarí has been up to loads of stuff these past 17 months. Who can forget the pink crepés, countless exibitions and concerts with over 100 bands. Actually we don't know how many happenings have gone down in our humble locale. We say goodbye with tears in our eyes for now we must move on, a hotel will rise!

We will close this first chapter in the history of Havarí with a grandoise festival. Our carnival will start on Monday 17th of January and continue daily until January 29th. Friends and benefactors of Havarí will entertain guests and themselves through music, poetry, visual art, exhibitions, installations and stuff. In addition we will put our albums and art in the shop on a massive sale.

Fear not for Havarí will be back in Reykjavík downtown area soon enough or when we have found our place again. Until then the good people and guests of Reykjavík will have to survive on sharkmeat and pickled ram-balls.


Schedule for HAVARÍ CARNIVAL

- Monday 17.01, 11:00
The swedish indie legend Spar-Jan will lead an opening ceremony and start the carnival and the Absalút Sale.

- Tuesday 18.01
TBA

- Wednesday 19.01, 16:00
Sindri Eldon w/ Band, Part I

- Thursday 20.01, 16:00
Sindri Eldon w/ Band, Part II

- Friday 21.01, 16:00
Per:Segulsvið

- Saturday 22.01, 16:00
Skakkacrepés (remember?) and Mr. Silla

- Monday 24.01, 16:00
Þórir Georg w/band

- Tuesday 25.01, 16:00
AMFJ

- Wednesday 26.01
TBA

- Thursday 27.01, 16:00
Amiina

- Friday 28.01
TBA

- Saturday 29.01, 16:00
Havarí Grand Finale feat. Prinspóló and Fm Belfast

We are looking forward in seeing you in the shop over the next two weeks. Come and say goodbye, finish our coffee and buy an album and enjoy the cultural apocalypse of Austurstræti 6.

Havarí
 
OPNUNARTÍMAR í desember eru sem hér segir:

Fimmtudagur 9.- Laugardagur 11. des | 11:00 - 22:00
Sunnudagur 12. des | 12:00 - 18:00
Mánudagur 13. - Miðvikudagur 15. des | 11:00 - 18:00
Fimmtudagur 16. - Miðvikudagur 22. des | 11:00 - 22:00
Þorláksmessa 23. des | 11:00 - 23:00
Aðfangadagur 24. des | 11:00 - 14:00
 
THE HEAVY EXPERIENCE ætla að leika nokkur lög í HAVARÍ miðvikudagskvöldið 22. desember kl. 20:00. Tilefnið er ærið en út er komin 10" stuttskífa samnefnd hljómsveitinni. Platan fæst einmitt í Havarí.

Rokksveitin The Heavy Experience hefur sent frá sér tíu tommu stuttskífu samnefnda sveitinni á vegum útgáfufélagsins Kimi Records. Platan inniheldur lögin Bad Temper, Bloody Sun og Morningstone og má lýsa tónlistin sem þ...ungri og tilraunakenndri rokktónlist undir áhrifum frá EARTH, Black Sabbath, Ennio Morricone og John Coltrane. The Heavy Experience stefnir á að taka upp og gefa út breiðskífu á árinu 2011 en það þykir nokkuð ljóst að hljómsveitin á framtíðina fyrir sér.

Það er opið til 22 í Havarí!

ENGLISH:

Icelandi heavyweight rockers of THE HEAVY EXPERIENCE will perform a few songs in HAVARÍ on wednesday evening December 22nd at 20:00. They just released a self titled 10" EP on Kimi Records.

The Heavy Experience sound can be described as Heavy experimental drone rock under influence from EARTH, Black Sabbath, Ennio Morricone og John Coltrane. Don't miss out on great event in these last few days before christmas.

It's open till 22:00 in Havarí!
 
 
Morðingjarnir ætla að heimsækja HAVARÍ á laugardag kl. 17 og taka nokkur lög og kynna nýútkomið jólakort sitt, en jólakortinu fylgja tvö splúnkuný jólalög, annað reyndar ábreiða á Þú komst með jólin til mín. Hitt er smellurinn Jólafeitabolla sem er farinn að óma á öllum útvarps- og sjónvarpsstöðvum. Þá má vænta þess að strákarnir verði í jólastuði og taki þessa jólaslagara ásamt öðru efni.

Plötubúðin og menningarafurðarstöðin HAV...ARÍ mun lengja og bæta opnunartíma sína nú um jólin því jú allir ættu nú að kaupa eitthvað smávægilegt í jólagjöf handa nánustu vinum og ættingjum á ókristilegum tímum. Það verður opið til 22 á laugardaginn.
 
BENNI HEMM HEMM ætlar að keyra þetta í gang og hita upp fyrir útgáfutónleika sína með tónleikum í HAVARÍ laugardaginn 11. desember kl. 16:00. Að sjálfsögðu er frítt inn á tónleikana í HAVARÍ. Benni er að kynna nýútkomna plötu sína en Skot hefur fengið frábæra dóma og þykir afbragðsverk, fékk meðal annars fjórar stjörnur í dómi Trausta Júlíussonar í Fréttablaðinu. Miðar á útgáfutónleikana eru fáanlegir í forsölu í Havarí og kosta...r aðeins 1.000 kr. Miðaverð við hurð Bakkusar er svo 1.500 kr.

Plötubúðin og menningarafurðarstöðin HAVARÍ mun lengja og bæta opnunartíma sína nú um jólin því jú allir ættu nú að kaupa eitthvað smávægilegt í jólagjöf handa nánustu vinum og ættingjum á ókristilegum tímum. Það verður opið til 22 á laugardaginn.
 
!!AGENT FRESCO Í HAVARÍ!!!

Tónlistarnördarnir og ofursnillingarnir í AGENT FRESCO ætla að kikkstarta jólaopnunartíma HAVARÍ næstkomandi fimmtudag kl. 21 með ókeypis tónleikum. Þeir eru að kynna ný útkomna breiðskífu sína um þessar mundir, en A Long Time Listening hefur fengið afbragðs dóma og viðtökur upp á síðkastið. Enda um geysiöflugan grip þar á ferð. Menn tala um plötu ársins. Platan verður á einhverju agalega fínu tilboði ...meðan drengirnir láta gamminn geysa. Svo er líklegast hægt að plata þá til að árita og hvaðeina.

Plötubúðin og menningarafurðarstöðin HAVARÍ mun lengja og bæta opnunartíma sína nú um jólin því jú allir ættu nú að kaupa eitthvað smávægilegt í jólagjöf handa nánustu vinum og ættingjum.

OPNUNARTÍMAR í desember eru sem hér segir:
Fimmtudagur 9.- Laugardagur 11. des | 11:00 - 22:00
Sunnudagur 12. des | 12:00 - 18:00
Mánudagur 13. - Miðvikudagur 15. des | 11:00 - 18:00
Fimmtudagur 16. - Miðvikudagur 22. des | 11:00 - 22:00
Þorláksmessa 23. des | 11:00 - 23:00
Aðfangadagur 24. des | 11:00 - 14:00
 

Hljómsveitin ENSÍMI mun leika nokkra þétta slagara í HAVARÍ laugardaginn 4. desember kl 16:30. Ensími sendi frá sér sína 4. 
breiðskífu nú í vetur og gaf henni nafnið Gæludýr, Record Records gaf út. Með útgáfunni snéri hljómsveitin úr hér um bil átta ára útgáfudvala. Dvalann má rekja til þess að meðlimir voru um það bil í öllum öðrum hljómsveitum á Íslandi í millitíðinni, léku til að mynda með Mugison, Láru Rúnars, Dr. Spock, Jeff Who, Ham og Pollapönki.

Án efa munu kapparnir taka lög af Gæludýrum ásamt eldri slögurum og slá á létta strengi þess á milli. Þess ber að geta að frítt er inn á tónleikana, Havarístarnir verða einnig í góðu stuði með dúndrandi plötutilboð og samkeppnishæft haítískt kaffi á kostakjörum.

ENGLISH:

ENSÍMI will perform in HAVARÍ on December 4th (Saturday) at 16:30. The band recently released their 4th LP after an eight year release hiatus. A hiatus were members performed with almost every other band in Iceland. Gæludýr is released by Record Records.

Ensími will most certainly perform some songs from their new album along with older superhits. Of course their is a free entry.

 

Hin stórkostlega og óreiðukennda hljómsveit ORPHIC OXTRA leikur fyrir gesti miðborgarinnar í HAVARÍ næstkomandi laugardag kl. 16. Orphic Oxtra gáfu nýverið út breiðskífu samnefnda sveitinni í samvinnu við Kimi Records og eru á ferð og flugi um allan bæ að kynna plötuna. 
Platan hefur fengið frábærar viðtökur og þykir mikið snilldarverk.

Nýjustu plöturnar, bolir, listaverk og allskyns dótarí er að sjálfsögðu fáanlegt í Havarí og kjörið að ná sér í eitthvað smotterí fyrir jólin og njóta góðra tóna um leið.

Umsögn um Orphic Oxtra:
"Tónlist Orphic Oxtra er það sem niðurníddur mörlandinn ÞARF á að halda í dag. Gleði, orka, bjartsýni og "kýlum á það" andi liggur yfir snælduvitlausu balkanstuðinu sem fær vonlausustu dauðyfli til að hrista á sér skankana villt og galið. Ekkert rugl, bara stuð!"
-Arnar Eggert Thoroddsen

Sjáumst í dúndrandi balkansveiflu í Havarí á laudardaginn!!

 

ENGLISH:

Things are going to get a bit chaotic in HAVARÍ on saturday when ORPHIC OXTRA performs songs from their self-titled debut LP. The fun starts at 16:00 and it's of course free.

The latest music, T-shirts, posters and stuff is of course available in Havarí and a good idea to do some christmas shopping whilst enjoying some great live music.

 
HJALTALÍN heldur tónleika í HAVARÍ næstkomandi laugardag 20. nóvember klukkan 16.00.

Hjaltalín er að fagna útkomu á plötunni Alpanon - Hjaltalín / á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, en platan inniheldur hvorttveggja CD og DVD með upptökum frá tónleikum hljómsveitanna tveggja frá því í sumar. Hjaltalín heldur formlega útgáfutónleika vegna þessa í Tjarnarbíó föstudags og laugardagskvöld. sjá: http://midi.is/tonleikar/1 /622...9

Sjáumst í HAVARÍ á laugardaginn, mætum snemma og tökum börnin með!

ENGLISH:

Hjaltalín will perform at Havarí Cultural Center on Saturday November 20th at 16:00.

Hjaltalín is celbrating the release of Alpanon this week with two almost sold out shows in Tjarnarbio and this free event in Havarí. Alpanon is a CD/DVD with recordings from their show with The Icelandic Symphonic Orchestra in June last summer. The concert was shot by the magnificent Árni Sveinsson (of Backyard glory) and recorded by Sveinn Kjartansson.

Here you can buy tickets to this shows in Tjarnarbíó: http://midi.is/tonleikar/1 /6229
 
HAVARÍ slær ekki slöku við þó Iceland Airwaves hátíðin sé nýafstaðin með tilheyrandi húllumhæi og tuttugu afstæðistónleikum.

Arnljótur Sigurðsson ætlar að sjá til þess að kúltúr standardinn haldi velli. Þeir sem ekki þekkja Arnljót þekkja kannski böndin sem hann spilar með, Ojba Rasta, Berndsen og Sin Fang. En á laugardaginn klukkan fjögur ætlar Arnljótur að koma fram einn og óstuddur og leika sér ýmist með gítardrifnar upptökur... eða fjölrása segulbandstæki.

Arnljótur er ekki bara lunkinn á sviði hljómlista, hann föndrar líka. Og það er gaman að segja frá því að hann hélt fyrstu einkasýninguna aðeins 5 ára gamall. Geri aðrir betur. Arnljótur ætlar að láta allt flakka á laugardaginn, spila mússík og sýna list því hann á Veggspjald vikunnar að þessu sinni og verður það afhjúpað við sama tækifæri. Hægt er að fræðast meira um það
verkefni á havari.is

Sem sagt - mússík og myndlist í HAVARÍ, á laugardaginn klukkan 16:00.

Sjáumst þá!


ENGLISH:

Arnljótur Sigurðsson is the guy that will keep up the spirit in Havarí next Saturday. For those who don't know him he plays with great bands such as Ojba Rasta, Berndsen and Sin Fang. This time he will go solo and I tell you my friends - this is very promising!

But Arnljótur doesn't only make nice music he also makes art for they eye. Only five years old he had his first solo exhibition and try top that! This Saturday Arnljótur will also reveal the Poster of the week. You can learn about that project on havari.is.

So there you have it: Music and art in HAVARÍ on Saturday at 4PM.

See ya!
 

Infæddir kynna: Træbal föndur og handverk frumbyggja.

Eins og á öllum áfangastöðum sem gefa sig út fyrir að vera exótískir bjóða innfæddir eyjaskeggjar aðkomufólk velkomið með því að sýna handverk. Á meðan á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves stendur munu eftirfarandi listamenn afhjúpa föndur sitt í HAVARÍ: Örvar Þóreyjarson Smárason (múm/FM Belfast), Sindri Már Sigfússon (Seabear/Sin Fang), Ingibjörg Birgisdóttir (Seabear), Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir (FM Belfast/
Prinspóló) Loji Höskuldsson (Sudden Weather Change/Prinspóló) og Halldór Ragnarsson (Seabear).

Sýningin opnar í HAVARÍ klukkan 18.00 á morgun miðvikudaginn 13. 
október.



English:

The Natives Present: Tribal Curiosities and Aboriginal Crafts.

Like in any pseudo-exotic location, native islanders like to welcome foreign visitors with hand-crafted knickknacks. Exhibiting such curiosities in Gallery Havarí during Iceland Airwaves are Örvar Þóreyjarson Smárason (múm/FM Belfast), Sindri Már Sigfússon (Seabear/ Sin Fang), Ingibjörg Birgisdóttir (Seabear), Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir (FM Belfast/Prinspóló) Loji Höskuldsson (Sudden Weather Change/
Prinspóló) og Halldór Ragnarsson (Seabear).

The exhibition will open in HAVARÍ tomorrow Wednesday October 13th on 6pm.

 
 
 
 

Hljóðaklettar hita upp fyrir Iceland Airwaves í Havarí laugardaginn 9. október klukkan 16:00.

Fram koma:

- Pétur Eyvindsson (Dj Musician, Evil Madness, Vindva Mei)
- Graupan & The Crying Cowboy

Allir þessir listamenn koma fram á Iceland Airwaves tónleikum sem Hljóðaklettar skipuleggja ásamt Electric Ethics 12. og 13. október. 
Nánari upplýsingar á hljodaklettar.com

Hljóðaklettar er úgáfufyrirtæki sem leggur áherslu á einstaka tónlist sem aðeins er gefin út í takmörkuðu upplagi. Ekkert upplag er stærra en 300 eintök og allar umbúðir eru handgerðar og númeraðar. 
Hljóðaklettar var stofnað að Rúnari Magnússyni og Sabrina Joy Winogrond. Hljóðaklettar beina sjónum sínum að electro acoustic, generative, drone, og diskó.

 

ENGLISH:

Hljóðaklettar warm up for Iceland Airwaves in Havarí, October 9th at 4pm.

Perfoming artist:

- Pétur Eyvindsson (Dj Musician, Evil Madness, Vindva Mei)
- Graupan & The Crying Cowboy

All those artist will perform at the Iceland Airwaves festival on a special event that is organized by Hljóðaklettar and Electric Ethics on the 12th and 13th of october. For further information: 
hljodaklettar.com

Hljóðaklettar is a boutique record label founded by Runar Magnusson and Sabrina Joy Winogrond for the purposes of releasing rare, limited, and collectible music. Each release will have a run of no more than 300 units and will be hand packaged, numbered, and distributed. Hljóðaklettar focuses on electro acoustic, generative, drone, and disco.

 
 
English below-

Havarí á eins árs afmæli um þessar mundir en plötubúðin, myndlistargalleríið, tónleikastaðurinn og kaffihúsið var opnað í Austurstræti 6 þann 17. september á síðasta ári.

Á laugardaginn verður blásið í blöðrur og pottþétt bökuð kaka og svo ætla hljómsveitirnar Sin Fang og Munnfylli af galli að sameinast í hljómsveitina Munnfylli af Sinfanggalli ...og leika lög beggja sveita í samruna. Tónleikarnir byrja klukkan 16.00 en við verðum í dúndrandi afmælisfíling allan daginn og gefum örugglega talsverðan afslátt af hljómplötum og öðrum listvarningi.

Havarí mun í tilefni dagsins opna heimasíðuna www.havari.is en þar hefur starfseminni verið pakkað vandlega saman á stafrænu formi. Markmið heimasíðunnar er að vera öflugur sölu- og kynningarvettvangur fyrir íslenska samtímalist og þá menningarviðburði sem Havarí heldur utan um. Heimasíðan mun vonandi vaxa og dafna í takt við starfsemina í Austurstræti 6 um aldir alda.

Sjáumst hress í ammæli á laugardaginn
Havarí



ENGLISH:

One year anniversary!

Havarí opened its door for art and music lovers for the first time on September 17th last year. Next Saturday we're going to celebrate this adventurous year with cakes, music, discounts and good fun and we would be wery happy if you would celebrate with us.

At 16 pm two amazing bands will honor us, Sin Fang and Munfulli af galli. And like a river they will cross and become Munfylli af Sin Fanggalli. Very promising project I'd say.

On this occasion we will launch ou new website www.havari.is. The aim with the website is to introduce icelandic music and contemporary art and represent Havarí´s activity throughout the cyber space. We hope that the website will grow with us into the future.

Hope to see you all this saturday!
Berglind, Svavar, Baldvin and the rest of the crew
 
 
Hljómsveitin SWORDS OF CHAOS gefur í dag út sína fyrstu breiðskífu THE END IS AS NEAR AS YOUR TEETH hjá hljómplötuútgáfunni Kimi Records. Að því tilefni ætlar sveitin að koma saman í Havarí á laugardaginn og fagna útgáfunni með tónleikahaldi og nærveru við vini sína og aðdáendur. Þess má geta að sveitin heldur síðan formlega útgáfutónleika á Faktorý bar þann 1. október og hægt er að ná sér í miða á þá tónleika í Havarí. Sjáumst með sverðin á lofti í Havarí á laugardaginn klukkan 16.00!

ENGLISH:

Swords of Chaos' debut album, THE END IS AS NEAR AS YOUR TEETH, is being released today via Kimi Records. The band will celebrate this achievement by performing an In-Store gig and Havarí next saturday. Official release concert will be the following week, October 1st, at Faktorý Bar and tickets are available in Havarí. We'll see you on a chaotic saturday at 16:00!