Havarí hýsir verkefnið Veggspjald vikunnar. Umgjörð verkefnisins er sérútbúinn veggspjaldastandur með áfastri fötu og í hverri viku er nýr listamaður eða hönnuður fenginn til þess að hanna veggspjald fyrir verkefnið. Veggspjaldið er prentað í 21 eintaki, eitt eintak er límt upp á standinn, en hinum 20 eintökunum er rúllað ofan í fötuna og boðin til sölu á 1500 krónur. Að viku liðinni er skipt um veggspjald og þegar 52 vikur eru liðnar verður gefin út bók með öllum veggspjöldunum. Hér má sjá sýnishorn af fyrri veggspjöldum en í Havarí liggur einnig frammi sýnismappa.