UM HAVARÍ
 

HAVARÍ er:

  • Hljómplötuverslun með megin áherslu á íslenska tónlist auk þess að bjóða upp á gott úrval af útlenskri nýbylgju

  • Myndlistargallerí með áherslu á samtímalist. Sýningarstefnan lýtur ströngum lögmálum hentistefnunnar.

  • Tónleika- og viðburðavettvangur með fasta tónleika og aðra viðburði á laugardögum klukkan 16.00.

  • Sölu og kynningarvettvangur fyrir allskyns annan listtengdan varning svo sem bækur, stuttermaboli, og skæslegar prjónavörur.

  • Staður þar sem þú getur sest niður og fengið þér ilmandi kaffi frá Kaffi Haiti og skipulagt næstu menningarbyltingu - ef þannig liggur þá þér.
 

Havarí var stofnað 19. september 2009 af Gogoyoko, Borgin Hljómplötur, Kimi Records og Berglindi og Svavari í Skakkamanage en þau síðastnefndu fengu það hlutverk að reka sjoppuna. Þetta var mjög hvatvís ákvörðun og sem dæmi má nefna þá fengum við húsnæðið í Austurstræti á fimmtudegi og opnuðum á laugardegi. Fjölmargir lögðu hönd á plóg og það er fegurðin við íslenska listamenn, það eru langflestir til í að taka þátt þegar menning og góð stemning er annars vegar.

Hugmyndin var að reka þetta til 1. janúar 2010 og sjá svo til. Það var þá sem Gogoyoko og Borgin Hljómplötur bökkuðu út og í dag er Havarí í eigu Berglindar Häsler, Svavars Péturs Eysteinssonar og Baldvins Esra Einarssonar.

En líkt og í upphafi þá stígum við varlega til jarðar og tökum einn dag í einu. Er á meðan gaman er. Enn eigum við nóg af hugmyndum í pokahorninu sem okkur langar að framkvæma og stóra drauma sem við viljum sjá rætast.

 

HAVARÍ
Austurstræti 6
551 5858
havari(at)havari.is

Havaríistar:
Berglind Häsler: berglind(at)havari.is
Baldvin Esra Einarsson:esra(at)havari.is
Svavar Pétur Eysteinsson: svavar(at)havari.is