Í hverri viku stígur hljómsveit á svið í Havarí og flytur tónlist sína fyrir gesti og gangandi. Fastur tími tónleikahalds er á laugardögum klukkan 16.00 en oftar en ekki eru líka tónleikar á öðrum tímum þannig að það borgar sig að vera í nágrenninu. Í Havarí er mjög gott hljóðkerfi og auk þess er á staðnum ágætis baklína sem inniheldur trommusett, bassamagnara og annað smálegt þannig að rótararnir geta tekið því rólega. Tónleikadagskrána má finna á viðburðasíðunni og hér er listi yfir þær sveitir sem hafa komið fram í Havarí frá upphafi: |